
Takk fyrir þetta Hans Jørgen!

En á meðan rigndi voru flestir inni. Í boði voru íslenskar SS pylsur og að sjálfsögðu SS pylsusinnep, íslenskt nammi og hægt að kaupa íslenskan fána. Kórinn söng nokkur lög og þjóðhátíðargestir tóku undir.
Sr. Arnaldur Bárðarson flutti hátíðarræðu. Í henni miðri tókst sólinni að brjóta sér leið í gegnum skýin.
Þá hélt hátíðin áfram úti, með reipitogi sem allir tóku þátt í, stórir og smáir, ásamt því að teymdir voru hestar undir börnunum.
Það voru milli 60 og 70 manns sem mættu á þjóðhátíðardaginn og áttu indæla stund saman.
Takk fyrir skemmtunina!
Fleiri myndir frá hátíðarhöldunum má finna hér á Google+, eða í Facebook grúppu Íslendingafélagsins Kjartans.
Ingen kommentarer:
Legg inn en kommentar